Vöru bætt við körfu

Quelli Della Pizza

Artisanal Pizza bases

Quelli Della Pizza

Quelli Della Pizza

Innnes hefur hafið sölu á forbökuðum pizzabotnum frá ítalska pizzabotnaframleiðandanum Quelli Della Pizza.  Frá árinu 2009 hafa þeir sett allt kapp í það að búa til hina fullkomnu súrdeigs pizzabotna – og það hefur þeim tekist!  Botnarnir frá Quelli Della Pizza gera hverjum sem er kleift að framreiða ekta ítalska pizzu á örfáum mínútum. Handhnoðað deigið og langur hefunartími gefa botnunum óviðjafnanlegan léttleika og eru botnarnir mjúkir að innan og stökkir að utan. Öll innihaldsefni í botnunum eru 100% ítölsk og af bestu gæðum og því engin tilviljun að pizzabotnarnir frá Quelli Della Pizza eru líklega þeir allra bestu sem völ er á í heiminum í dag.

Um botnana:

Vesuvio

Vezuvio pizzabotninn er nútímaútgáfa hins fornfræga Napólíska pizzabotns. Þykk og loftmikil skorpa og stökkur súrdeigsbotninn er blanda sem erfitt er að standast. Langur hefunartími og sérvalin hráefni gera þennan pizzabotn sérlega bragðgóðan. Pizzadeigið er handhnoðað og hluti vatnsins sem í það fer er hreinsaður sjór sem gefur deiginu ljúfa seltu. Öll innihaldsefni eru 100% ítölsk.

Gold

Gold súrdeigspizzabotninn frá Quelli Della Pizza er ilmandi að utan og mjúkur að innan með fíngerðri skorpu. Án nokkurs vafa er þetta besti handverkspizzabotninn á markaðnum í dag. Öll innihaldsefni eru 100% ítölsk.

Pinsella

Pinsella pizzabotninn er stökkur að utan en mjúkur að innan. Hátt vatnsinnihald botnsins og langur hefunartími gefa honum óviðjafnanlegan léttleika en á sama tíma er hann stökkur. Náttúrulegt ger og einföld hágæða hráefni koma hér saman og gefa af sér einstakan pizzabotn. Öll innihaldsefni eru 100% ítölsk.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er