Blæjuber
Blæjuber (Physalis peruviana) eru lítil appelsínugul ber, umvafin pappírskenndum laufum sem minna á blæju. Blæjuber eru skyld tómötum og hafa svipaðan sætleika. Blæjuber eru C-vítamínrík sem stuðlar m.a. að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Berin eru mikið notuð sem skraut á kökur, en eru einnig frábær í salatið eða með bræddu súkkulaði.
Hvernig er best að geyma blæjuber?
Fjarlægið ekki hýðið fyrr en rétt fyrir notkun. Ekki skal þvo berin fyrr en rétt fyrir notkun, þar sem vökvinn getur framkallað ofþroskun. Geymast í kæli í allt að tvær vikur.
Notkunarleiðbeiningar
Þvoið berin vel fyrir notkun. Laufablæjan tekin frá fyrir neyslu.
Blæjuber
Næringargildi Í 100g eða 100 mL |
|
Orka |
184 kJ 44 kkal |
Fita -þar af mettuð |
0.6g 0.0g |
Kolvetni -þar af sykur |
10.2g 0.0g |
Trefjar | 4.3g |
Prótein | 0.9g |
Salt | 1 mg |
C-vítamín | 27.7 mg |
– skv.USDA gagnagrunni |