Grænar melónur
Melónur eru sérlega safaríkar og ljúffengar og innihalda hátt hluttfall vatns. Melónurnar henta frábærlega með góðri serrano skinku og rauðvíni.
Hvernig er best að geyma grænar melónur?
Melónan geymist við stofuhita þar til fullþroskuð en eftir það geymist hún í kæli í 7-10 daga.
Notkunarleiðbeiningar
Þvoið ávöxtinn vel fyrir notkun. Skerið hann í tvennt og skafið fræin úr. Skerið svo í sneiðar.