Hunt’s styrkir Krabbameinsfélagið í gegnum átakið Bleiku slaufuna sem þetta árið snýr að því að efla ráðgjafaþjónustu félagsins.
Krabbameinsfélag Íslands tileinkar októbermánuð baráttu gegn krabbameini hjá konum. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar í ár rennur til Ráðgjafarþjónustu félagsins með það að markmiði að efla stuðning, fræðslu og ráðgjöf til einstaklinga um allt land sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra.
Að vanda styrkir Hunt’s Krabbameinsfélagið með því að láta hluta af söluágóða Hunt’s tómatvara renna til átaksins Bleiku slaufunnar. Í október í ár söfnuðust 710 þúsund krónur. Bleika slaufan og bleikur október eru alþjóðlegt fyrirbæri sem flest Krabbameinsfélög heims standa fyrir. Slaufan er tákn Krabbameinsfélagins í baráttunni gegn krabbameini í konum. Eins og venja er orðin leggur Hunt’s þessu mikilvæga málefni lið með því að láta hluta af söluágóða Hunt’s tómatvara renna til átaksins Konur og krabbamein undir merkjum Bleiku slaufunnar. Niðurstöður ýmissa rannsókna hafa sýnt að neysla á tómötum og afurða úr þeim geti dregið úr líkum á krabbameini.
Á meðfylgjandi mynd eru Sigríður Sólan Guðlaugsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins og Lovísa Jenný Sigurðardóttir, markaðsstjóri hjá Innnes.