Vefhegðun
Þegar notendur heimsækja vefsvæði Innnes áskilur félagið sér rétt til að safna ákveðnum tæknilegum upplýsingum um heimsóknina, þ.m.t. tegund vafra, hvaða síður notendur nota innan vefsvæðisins, tímann sem notendur verja. Þetta gerum við m.a. til að bæta upplifun notenda af vefsvæðinu, en upplýsingarnar eru ekki greindar frekar niður á einstaka notendur á persónugreinanlegan hátt.
Vefsvæði Innnes takmarkast við lénin www.innnes.is en ekki aðra vefi sem vísað getur verið í af vefsvæðinu (t.d. vefsíður birgja) og ábyrgist Innnes hvorki innihald þeirra né meðferð upplýsinga á þeim svæðum.
Persónuupplýsingar
Innnes notar ekki persónuupplýsingar þínar í neinum öðrum tilgangi en þeirra var aflað og leggur mikið upp úr því að tryggja öryggi þeirra.