Sléttur og rjómakenndur vegan ostur í bland við einstakt reykbragð Applewood®. Osturinn er án mjólkurvara, soja, laktósa og glúten. Applewood osturinn bragðast ljúffenglega, sérstaklega bræddur.
Applewood® Vegan var nýlega valið besta vegan ostamerkið í Vegan Food and Living Awards 2022. Þetta eru ekki fyrstu verðlaunin sem osturinn hefur fengið, en hann hefur m.a. verið valinn besti vegan osturinn í Vegan Food UK Awards 2019 og 2022. Einnig hefur hann fengið gullverðlaun á FreeFrom Food Awards 2020 ásamt því að vera valinn besti vegan osturinn til að bræða í Vegan Cheese Co. 2019 verðlaununum.