Product added to cart
- Quantity: 5 kg
- SKU: 611642
- Barcode:
- In stock
Bluefin tuna loin er hreinn, magur hluti af bláuggatúnfiski; kjötið sem flestir þekkja úr sashimi, nigiri og carpaccio. Þetta er vöðvahluti fisksins með djúprauðan lit, fína trefjabyggingu og hreint, milt bragð sem endurspeglar ferskleika og gæði hráefnisins. Túnfiskurinn kemur frá Balfegó á Spáni, sem er eitt virtasta fyrirtæki heims í vinnslu og meðhöndlun bláuggatúnfisks. Allur fiskurinn er rekjanlegur, veiddur með ábyrgum hætti og unninn samkvæmt ströngustu gæðastöðlum í greininni.
Sneiðarnar eru djúpfrystar við -60°C, sem stöðvar niðurbrot frumna, varðveitir áferð, lit og bragð og tryggir gæði sem eru sambærileg við ofurferskt hráefni. Þetta er nákvæmlega sama frystiaðferð og notuð er af fremstu sushi-veitingastöðum heims. Hentar sérstaklega fyrir: Sushi, Sashimi, Tataki, Carpaccio og létta steikingu þar sem hráefnið fær að njóta sín.