Vöru bætt við körfu
Innnes annast alla sölu- og dreifingu á Dr. Oetker vörum
29. júlí 2026
Innnes hefur um árabil annast sölu og dreifingu á vinsælum vörum frá Dr. Oetker, meðal annars Ristorante-, Suprema- og Tradizionale-pizzunum. Nú hefur Dr. Oetker falið Innnes að annast sölu og dreifingu á öllum vörum fyrirtækisins á Íslandi, bæði á smásölu- og fyrirtækjamarkaði. Með þessu styrkjast enn frekar tengsl Innnes og Dr. Oetker, en vörumerkið hefur lengi verið vel þekkt meðal íslenskra neytenda.
Samhliða breytingunni stækkar vöruval Dr. Oetker hjá Innnes verulega. Við bætast fjölbreyttar vörur fyrir heimili, verslanir, veitingastaði og mötuneyti, meðal annars búðingar og eftirréttir, súpur, kraftar og þykkingarefni ásamt fjölmörgum vörum til baksturs og kökuskreytinga. Þar má nefna lyftiduft, vanillusykur, matarliti, bragðefni, kökuskraut, glassúr og ýmsar sérvörur fyrir baksturinn. Einnig bætast við vörur í stærri einingum sem henta sérstaklega vel fyrir fyrirtækjamarkað.
Með auknu vöruvali geta viðskiptavinir Innnes nú nálgast enn stærri hluta af fjölbreyttu vöruúrvali Dr. Oetker á einum stað.