Vöru bætt við körfu

Innnes ehf. kaupir Arka Heilsuvörur ehf.

12. október 2022

Innnes ehf. kaupir Arka Heilsuvörur ehf.

Innnes ehf. hefur fest kaup á innflutningsfyrirtækinu Arka Heilsuvörur ehf., öflugu fjölskyldufyrirtæki sem lagt hefur áherslu á innflutning og dreifingu á heilsu- og lífstílsvörum.

Meðal þekktra vörumerkja Arka sem eru landsmönnum að góðu kunn má nefna VIT-HIT - hitaeiningasnauðir vítamíndrykkir, FULFIL - vítamín og próteinstykki, THE BERRY COMPANY - frískandi berjadrykkir, TONY´S - súkkulaðiplötur, KIDDYLICIOUS - bragðgóðar barnavörur, BE PLUS - lífrænar orkuskvísur og EAT NATURAL morgunkorn og orkustykki.

Kaup Innnes á Arka falla vel að markmiðum og gildum félagsins en það er að bjóða upp á breitt vöruúrval og heildstæðar lausnir fyrir viðskiptavini sína.

Það er því mikill fengur fyrir Innnes að fá þessi öflugu vörumerki í vöruúrval sitt og geta boðið viðskiptavinum sínum upp á fjölbreyttari lífstíls- og heilsuvörulínu.

Frá og með mánudeginum 17. október verða allar vörur Arka fáanlegar hjá Innnes og frá sama tíma mun sölu- og markaðsfólk Arka hefja störf hjá Innnes.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er