Vöru bætt við körfu

Innnes kaupir Djúpalón

24. ágúst 2023

Innnes kaupir Djúpalón

Innnes ehf hefur fest kaup á fyrirtækinu Djúpalóni ehf sem sérhæfir sig í innflutningi, sölu og dreifingu á fjölbreyttu fersku, kældu og frosnu sjávarfangi til fyrirtækja og verslana. Kaupin eru gerð með fyrirvara á samþykki samkeppnisyfirvalda. Engum verður sagt upp við sameininguna.

„Við höfum fundið aukna eftirspurn eftir fjölbreyttu fersku, kældu og frosnu sjávarfangi hjá okkar viðskiptavinum, bæði á fyrirtækja- og neytendamarkaði og því eru kaupin á Djúpalóni í takt við okkar markmið að þjónusta okkar viðskiptavini sem allra best. Djúplóni hefur gengið vel á sínum markaði, er með öflugt teymi og við sjáum mikil vaxtartækifæri framundan með þessum kaupum,” segir Magnús Óli Ólafsson forstjóri Innnes.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er