Vöru bætt við körfu

Innnes tekur við sölu og dreifingu á vínum frá Bolla!

01. desember 2024

Innnes tekur við sölu og dreifingu á vínum frá Bolla!

Það er okkur sönn ánægja og mikill heiður að tilkynna að Innnes ehf. hefur tekið yfir sölu og dreifingu á vínum frá hinu virta vínhúsi Bolla.

Bolla á sér ríka sögu og djúpar rætur í víngerðarhefðum Ítalíu. Víngerðin var stofnuð árið 1883 og hefur síðan þá skapað sér nafn fyrir gæði, hefð og nýsköpun. Þekktust eru vín þeirra frá Valpolicella vínræktunarsvæðinu, þar á meðal hið vinsæla Amarone della Valpolicella.

Vínin frá Bolla eru Íslendingum vel kunn og hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin, bæði fyrir gæði og stöðugleika. Það er því sérstakt ánægjuefni fyrir Innnes að fá þetta virta vínhús í okkar hóp. Við hlökkum til að halda áfram að bjóða viðskiptavinum upp á þessi frábæru vín og styðja við enn frekari útbreiðslu þeirra hér á landi.

Endilega kynnið ykkur nánar vínin frá Bolla hér.

Með kveðju,
Starfsfólk, Innnes

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Listi uppfærður

Ekki var hægt að uppfæra lista

Ekki var hægt að bæta við körfu

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Bæta við vörulista

Nýr vörulisti

Vöru bætt við vörulista

Are you sure you want to delete the list?