Vöru bætt við körfu

Mikilvæg breyting á vefverslun Innnes

15. júní 2026

Mikilvæg breyting á vefverslun Innnes

Mikilvæg breyting á vefverslun Innnes

Kæri viðskiptavinur,

Við viljum upplýsa um breytingar á vefverslun Innnes sem taka gildi mánudaginn 22. júní næstkomandi. Markmið breytingana er að einfalda, bæta öryggi og auka skilvirkni í afgreiðslu pantana.

Staðgreiðsluviðskipti

Fyrir viðskiptavini sem eru í staðgreiðslu á viðskiptareikning er það framvegis eingöngu í boði gegn því að gilt greiðslukort (debet/kredit) sé skráð á viðskiptareikninginn. Skrá þarf greiðslukort undir Mínar síður > Bókhald > Greiðsluupplýsingar https://innnes.is/minar-sidur/bokhald/greidsluupplysingar/

Úttektarheimild tengist sölu

Úttektarheimild verður sýnileg á sama stað og greiðsluupplýsingar undir Mínar síður https://innnes.is/minar-sidur/bokhald/greidsluupplysingar/

Úttektarheimild viðskiptavinar verður framvegis tengd beint við pöntunarferli í vefverslun. Fari pöntun yfir samþykkta úttektarheimild fer pöntunin ekki í gegn.

Yfirlit yfir reikninga og afrit, greiðsluseðla og hreyfingayfirlit má nálgast á Mínar síður > Bókhald.

Ef pöntun stöðvast

Ef pöntun stöðvast sökum þess að farið er yfir úttektarheimild, er hægt að greiða eldri greiðsluseðla í heimabanka. Úttektarheimild virkjast sjálfkrafa þegar greiðsla hefur verið framkvæmd og viðskipti geta haldið áfram.

Til viðbótar við greiðslur á eldri greiðsluseðlum verður boðið upp á greiðslu stakra pantana með greiðslukorti, ef þess þarf.

Við hjá Innnes teljum að ofangreindar breytingar stuðli að betri þjónustu, skilvirkari og hraðari afgreiðslu pantana. Ef spurningar vakna eru starfsmenn Innnes ávallt tilbúnir að aðstoða.

Með bestu kveðju,

Starfsfólk Innnes ehf.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Vörum bætt við körfu

Listi uppfærður

Ekki var hægt að bæta við körfu

Ekki var hægt að uppfæra lista

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki var hægt að bæta við körfu

Aðeins aðilar með skráð vínveitingaleyfi geta pantað þessa vöru.  Vinsamlegast hafið samband við verslun@innnes.is ef leiðrétta þarf skráningu.