Vöru bætt við körfu
Ný innskráningarþjónusta fyrir Innnes.is
13. ágúst 2024
Ágæti viðskiptavinur,
Innskráning í gegnum Island.is mun hætta um næstkomandi mánaðarmót.
Í staðinn mun innskráning verða með rafrænum skilríkjum í gegnum nýjan þjónustuaðila, Auðkenni. Breytingin mun taka gildi 27. ágúst.
Viðskiptavinir sem hafa skráð sig inn með rafrænum skilríkjum eiga ekki að verða varir við breytinguna annað en að innskráningargluggi verður með öðru útliti.
Ef viðskiptavinir hafa skráð sig inn með Íslykli þá mun sú innskráningarleið hætta samhliða og eru viðskiptavinir hvattir til að hafa samband við Innnes og láta tengja sig með rafrænum skilríkjum í staðinn.
Með kveðju, Starfsfólk Innnes