Vöru bætt við körfu
Stórsýningin Matur og Vín
02. júlí 2024
Innnes í samstarfi við fjölda birgja í mat og víni munu blása til glæsilegrar fagsýningar í húsakynnum Innnes í Korngörðum 3, fimmtudaginn 12. september, milli klukkan 15:00 og 20:00.
Von er á 45 fulltrúum frá heimsþekktum framleiðendum frá öllum heimshornum sem munu kynna það nýjasta í mat og drykk í dag.
Það er mikill spenningur fyrir sýningunni og um að gera að taka daginn frá – Hlökkum til að sjá ykkur 12. september nk.
Kveðja - Starfsfólk Innnes
Athugið, sýningin er einungis fyrir viðskiptavini og velunnara Innnes. Boðskort hafa verið send út.
20 ára aldurstakmark.