Vöru bætt við körfu
Gæðastefna
Stefna Innnes er að tryggja öryggi matvæla og að afhenda ávallt gæðavöru úr úrvals hráefni til viðskiptavina sinna.
Innnes setur viðskiptavininn í öndvegi og veitir þjónustu sem tekur mið af væntingum hans. Góð samskipti skipa þar stóran sess, hvort sem um innri eða ytri viðskiptavini er að ræða.
Innnes starfrækir vottað gæðakerfi samkvæmt alþjóðlega matvælaöryggisstaðlinum ISO 22000 og er gæðakerfið vottað af BSI á Íslandi. Innnes uppfyllir kröfur um innflutning, geymslu og dreifingu lífrænna afurða, og er vottað af Tún.
Innnes stuðlar að virkri gæðavitund starfsfólks með skipulagðri og reglubundinni þjálfun. Áhersla er lögð á lykilferla (móttöku vara, réttar merkingar, geymslu og dreifingu), innra eftirlit og stöðugar umbætur.
Innnes fylgist reglulega með árangri sínum varðandi gæði og öryggi matvæla og kynnir fyrir hagsmunaaðilum.
Innnes tekur ávallt mið af lagalegum kröfum.
Markmið Innnes varðandi gæði og öryggi matvæla:
- Greina áhættur varðandi matvælaöryggi
- Veita starfsfólki þjálfun og fræðslu um gæði og öryggi matvæla
- Meðhöndla matvæli á öruggan hátt
- Eiga viðskipti við ábyrga birgja og þjónustuaðila
- Hafa fyrsta flokks aðbúnað fyrir innflutning, geymslu og dreifingu matvæla
Útgefið og samþykkt af stjórn Innnes í mars 2019.
Endurskoðað af gæðastjóra og samþykkt af stjórn Innnes 15. maí 2025