Vöru bætt við körfu

Jafnréttis- og jafnlaunastefna

Tilgangur og markmið jafnréttis og jafnlaunastefnu Innnes er að stuðla að jafnrétti kynjanna í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020, þar með talið að greidd séu sambærileg laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að stefnt sé að enginn óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar hjá Innnes.

Innnes leggur áherslu á jafnrétti kynjanna og að nýta til jafns styrkleika allra þannig að hæfileikar og færni alls mannauðs félagsins njóti sín sem best og er það skjalfest með stefnu þessari. Stefna Innnes er að vera vinnustaður þar sem hver einstaklingur er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu. Einnig að starfsfólk hafi jöfn tækifæri til þess að axla ábyrgð og sinna verkefnum óháð kyni. Innnes skuldbindur sig til að vinna að jafnréttismálum, hafa frumkvæði í þeim og sýna þannig samfélagsábyrgð. Innnes fylgir lögum, reglum og samningum sem snerta jafnréttismál og gilda á hverjum tíma.

  • Innnes greiðir öllum sömu laun fyrir jafnverðmæt störf
  • Allir skulu njóta sömu kjara eða réttinda sem metin verða til fjár, t.a.m. er varðar lífeyris-, orlofs-, og veikindarétt, og hlunnindi af einhverju tagi
  • Innnes leggur áherslu á að allir njóti sömu tækifæra í starfi og eigi jafna möguleika á starfsþróun
  • Innnes fylgir eftir jafnréttisáætlun þar sem lögð er áhersla á að allir starfsmenn geti notið sín án tillits til kynferðis, þjóðernis, trúarbragða, skoðana, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs og stöðu hvers og eins
  • Áhersla er lögð á að nýta jafnt styrkleika sem felst í menntun, reynslu og viðhorfi allra og jafnan möguleika þeirra á að njóta sín í starfi
  • Hjá Innnes skal gagnkvæm virðing og kurteisi ráða ríkjum, einelti, kynbundin og kynferðisleg áreitni er ekki liðin

Jafnlaunavottun Innnes

Sækja skírteini fyrir jafnlaunavottun Innnes ÍST 85:2012 (Ecertificate – EQ 732861)

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Listi uppfærður

Ekki var hægt að uppfæra lista

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Bæta við vörulista

Nýr vörulisti

Vöru bætt við vörulista

Ertu viss um að þú viljir eyða listanum?