Vöru bætt við körfu
Öryggisstefna
Innnes hefur öryggi starfsfólks og annarra hagsmunaaðila í forgangi og stuðlar að heilbrigði þeirra.
Innnes leitast við að lágmarka áhættu og er áhættumatið endurmetið reglulega.
Innnes hefur ISO 45001 staðalinn til hliðsjónar og fer ávallt að lagalegum kröfum.
Innnes fylgist reglulega með árangri sínum í öryggismálum og kynnir fyrir hagsmunaaðilum.
Markmið Innnes í öryggismálum:
- Greina áhættur varðandi öryggi starfsfólks og annarra hagsmunaaðila
- Styðja við andlegt og líkamlegt heilbrigði starfsfólks
- Viðhalda öryggismenningu þar sem allt starfsfólk stuðlar að öruggum og slysalausum vinnustað
- Veita starfsfólki þjálfun og fræðslu um öryggismál
- Hafa eftirlit með öryggisatriðum og sjá til þess að stöðugar umbætur eigi sér stað