Vöru bætt við körfu
Innnes
Leiðandi í matvælaflutningi síðan 1987
Innnes ehf. er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins. Mörg vörumerki fyrirtækisins eru landsmönnum að góðu kunn. Félagið hefur á að skipa samhentum hópi starfsmanna sem tilbúinn er að þjóna viðskiptavinum eins og kostur er.
Dreifingarmiðstöð og skrifstofur eru staðsettar við Korngarða 3 í Reykjavík. Í dreifingarmiðstöð félagsins eru vörur geymdar við bestu aðstæður í háhillugeymslum, frysti-og kæliklefum. Innnes starfrækir gæðakerfi samkvæmt matvælaöryggisstaðlinum ISO 22000 og HACCP kerfi með tilliti til góðra starfshátta fyrir matvælafyrirtæki.
Myndband af vöruhúsi Innnes að Korngörðum 3, Reykjavík
Starfsfólk Innnes leggur höfuðáherslu á þjónustulipurð, góð persónuleg samskipti við viðskiptavini og nákvæma afgreiðslu pantana á réttum tíma. Hjá Innnes starfar öflug liðsheild sem er staðráðin í að vera fremst á sínu sviði á Íslandi.
Starfsmenn félagsins annast val á vörum, innflutning, markaðssetningu og dreifingu á matvöru fyrir stórmarkaði, þægindaverslanir, hótel, veitingastaði, bakarí og mötuneyti um allt land. Auk þess þjónum við fyrirtækjum með breiðu úrvali af kaffi- og vatnsvélum.
Við hvetjum þig til að vera í sambandi við sölu- og þjónustuver okkar í síma 532-4020.
Hér er hægt að sækja starfsleyfi Innnes að Korngörðum 3 á PDF.
Hér er hægt að sækja starfsleyfi Innnes að Korngörðum 13 á PDF.
Innnes ehf.
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Sími: 532 4000
Fax: 530 4050
Netfang: innnes@innnes.is
Kt. 650387-1399
Vsk.nr. 009079