Gaggia 100

Gaggia 100

G100 er vönduð sjálfvirk kaffivél frá Gaggia sem sameinar ítalska kaffimenningu með nútímalegri tækni og áreiðanleika. Hún er hönnuð fyrir skrifstofur, minni þjónusturými og fyrirtæki þar sem mikilvægt er að bjóða upp á góðan kaffidrykk með einföldum rekstri, lágmarks viðhaldi og stöðugum gæðum.

G100 nýtir þróaða bruggtækni (Z4000 brewing system) sem tryggir stöðugt bragð, rétta hitastýringu og framúrskarandi crema í hverjum bolla.

Hvort sem um er að ræða espresso, lungo eða mjólkurdrykki skilar vélin stöðugum og áreiðanlegum gæðum í daglegri notkun.

Helstu kostir G100

G100 er hönnuð fyrir daglega notkun í umhverfi þar sem þarf áreiðanlega kaffilausn án þess að fara í stærstu og afkastamestu vélarnar. Vélin heldur stöðugum afköstum yfir daginn og hentar sérstaklega vel fyrir skrifstofur og minni vinnustaði þar sem einfaldleiki og gæði þurfa að haldast í hendur.

Stöðug gæði í hverjum bolla

Með nákvæmri bruggtækni tryggir G100 jafnvægi í bragði og stöðug gæði í hverjum bolla. Vélin er hönnuð til að skila góðum kaffidrykkjum án flækjustigs og gerir notendum kleift að treysta á sama góða dykkinn, dag eftir dag.

7” snertiskjár – einföld og nútímaleg notkun

7″ sérsniðinn snertiskjár gerir notendum kleift að velja úr fjölbreyttum drykkjavalkostum með einföldumog skýrum leiðbeiningum. Notkun vélarinnar er einföld og aðgengileg sem gerir öllum kleift að velja drykk á fljótlegan og þægilegan hátt.

Orkusparandi og umhverfisvæn

G100 er jafnframt hagkvæm í rekstri og er í A-flokks orkunýtni. Nett og nútímaleg hönnun hennar gerir hana auðvelda í uppsetningu og hún fellur vel inn í flest rými.

Tæknilýsing í stuttu máli

  • Þyngd:~35–40kg
  • Mál: 30,8 cm (breidd) x 57 cm (dýpt) x 63 cm (hæð)
  • Drykkjavalkostir: Margvíslegir espresso- og mjólkurdrykkir með sérsniðnum stillingum
  • Orkukerfi: A-flokks orkunýtni
  • Beintengt við vatnslögn

Vélin er búin einu baunahólfi sem tekur 600 gr., auk kakó- og mjólkurduft hólfi

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Vörum bætt við körfu

Listi uppfærður

Ekki var hægt að bæta við körfu

Ekki var hægt að uppfæra lista

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki var hægt að bæta við körfu

Aðeins aðilar með skráð vínveitingaleyfi geta pantað þessa vöru.  Vinsamlegast hafið samband við verslun@innnes.is ef leiðrétta þarf skráningu.