Vöru bætt við körfu
Ciao Mashed Tomatoes
- Magn: 2,5 kg
- Vörunúmer: 117601
- Strikamerki: 8004402110659
- Til á lager
Ciao Mashed Tomatoes eru silkimjúkir og lyfta matreiðslunni upp á annað plan. Framleiðsluferlið er í senn bæði einfalt og flókið, afhýddir tómatar eru saxaðir og fræhreinsaðir áður en safinn er þéttur með náttúrulegri uppgufun. Útkoman er dýrindis tómatmauk með fallegri áferð, tilbúin til notkunar beint úr dósinni. Þegar kemur að ítalskri matargerð er sósan hjartað í öllu saman. Ciao er fjölskyldufyrirtæki staðsett í hinu frjóa San Marzano héraði á Ítalíu, rétt við rætur Vesúvíusar. Þar fara saman aldagamlar hefðir, eldfjallajarðvegur og ástríða fyrir því að rækta bestu tómata í heimi. Ciao leggur metnað sinn í að fanga ferskleikann beint af akrinum. Tómatarnir eru tíndir þegar þeir eru fullþroskaðir og farið er með þá í vinnslu innan örfárra klukkustunda til að tryggja að bragðið, liturinn og næringarefnin varðveitist fullkomlega. Útkoman er vara í hæsta gæðaflokki.
LandItaly