Vöru bætt við körfu

Skilmálar

Innnes ehf.
Skilmálar

Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru í vefverslun Innnes ehf., kt.650387-1399, Korngarðar 3, 104 Reykjavík – í skilmálum þessum nefnt Innnes. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Innness annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.

Verð á vefsíðu þessari eru án virðisaukaskatts og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.

Innnes áskilur sér einhliða rétt til að breyta skilmálum þessum með birtingu á heimasíðu félagsins, www.innnes.is

Vöruafhending
Pantanir fyrir höfuðborgarsvæðið þurfa að berast fyrir lok dags til að vera afgreiddar næsta virka dag.

Pantanir fyrir landsbyggðina þurfa að berast fyrir kl. 10.00 til að fara á flutningsmiðstöðvar fyrir lok dags og eru keyrðar út daginn eftir, samkvæmt akstursáætlun flutningsaðila.

Vöruskil 

Ef skila á vöru (hver sem ástæðan er), skal kaupandi koma athugasemdum til viðkomandi sölusviðs eða þjónustudeildar innan 48 klst frá móttöku vöru.

Það er því með öllu óheimilt að afhenda skilavöru til bílstjóra Innness, senda í aðkeyptum flutningi eða mæta með vöruna til okkar, nema með samþykki sölusviðs eða þjónustudeildar.

Frystivöru, ferskvöru (ávextir og grænmeti) og kælivöru er ekki hægt að skila nema um galla sé að ræða eða ranga afhendingu.

Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins skulu endursendar með Flytjanda eftir að samþykki sölusviðs liggur fyrir. Kreditreikningur er gerður þegar varan kemur í hús.

Hafi vara skemmst í meðhöndlun starfsmanna þriðja aðila (t.d. flutningsaðila) eða ef misræmi er á milli fjölda afhentra vara og vörufylgiskjals, þarf móttakandi vöru að gera athugasemd við flutningsaðila við vöruafhendingu.

Reikningsviðskipti
Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli Innness og viðskiptavina þess. Dráttarvextir reiknast á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga, í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, með síðari breytingum. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast fjármálasviði Innness innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.

Stór hluti af vörum Innnes er afgreiddur og reikningsfærður eftir vigt. Innnes leitast eftir því að afgreiða sem næst þeirri þyngd sem viðskiptavinur pantar. Endanlegur reikningur miðast ávallt við endanlega þyngd vöru við afgreiðslu.


Meðferð persónuupplýsinga
Með kaupum á vörum og þjónustu samþykkir þú skilmála Innnes varðandi söfnun og vinnslu á persónuupplýsingum.

Innnes skuldbindur sig, í tilvikum þar sem persónuupplýsingar eru skráðar s.s. vegna starfsumsókna, pantana á vörum, styrktarbeiðna eða í tengslum við markaðssetningu félagsins eða leiki, þar sem viðskiptavinur þarf mögulega að skrá nafn, heimilisfang, tölvupóstfang, síma eða aðrar persónuupplýsingar, til að meðhöndla þær í samræmi við gildandi lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Framangreindar upplýsingar eru varðveittar á öruggan og tryggan hátt og verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum án samþykkis aðila eða í kjölfar dómsúrskurðar.

Þú átt rétt á og getur óskað eftir upplýsingum um atriði eins og hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig, hverjir hafa aðgang að þeim, hvernig þær séu unnar og hvernig þær séu uppfærðar og/eða leiðréttar með því að senda fyrirspurn á personuvernd@innnes.isI Innnesi er heimilt að miðla persónuupplýsingum um þig til þriðja aðila sem er þjónustuaðili, verktaki eða umboðsmaður Innnes í þeim tilgangi að veita þér vöru eða þjónustu sem þú hefur óskað eftir. Innnesi er einnig heimilt, til verndar brýnum lögvörðum? hagsmunum, að deila upplýsingum t.d. vegna innheimtu á vanskilakröfu.
Innnes áskilur sér rétt til að nota persónuupplýsingar til að senda viðskiptavinum markpósta með tölvupósti og/eða sms-skeytum. Er það gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum félagsins sem besta þjónustu.

Lög og varnarþing
Íslensk lög skulu gilda um skilmála þessa, samninga og eftir atvikum tilboð sem Innnes gerir við viðskiptavini sína. Ágreining um framkvæmd samnings skulu Innnes og viðskiptavinur leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Heimilt er að vísa ágreiningi til gerðardóms ef báðir aðilar eru því samþykkir og skulu lög nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma gilda um málsmeðferð fyrir gerðardómi.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Listi uppfærður

Ekki var hægt að uppfæra lista

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Bæta við vörulista

Nýr vörulisti

Vöru bætt við vörulista

Ertu viss um að þú viljir eyða listanum?