Vöru bætt við körfu
OREO ís
Einfaldur OREO ís með heitri fílakaramellusósu.
Hve margir eru í mat?
Hráefni
- Ís:
- eggjarauður 8 stk
- sykur 120 gr
- rjómi 1 liter
- vanilludropar 4 tsk
- OREO Crumbs 600 gr
- Fílakaramellusósa:
- Fílakaramellur 20 stk
- rjómi 1 dl
Leiðbeiningar
Ís:
Byrjið á því að léttþeyta rjómann og setja hann til hliðar.
Þeytið eggjarauður og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanilludropum við í lokin og hrærið saman.
Blandið eggjablöndunni varlega saman við rjómann.
Bætið svo í lokin OREO Crumbs saman við og hrærið varlega.
Setjið ísinn í ílangt form
Stráið OREO Crumbs yfir isinn og setjið í frysti.
Best er að láta ísinn taka sig í frysti í 24 tíma.
Berið fram með heitri fílakaramellusósu.
Fílakaramellusósa:
Bræðið saman karamellurnar og rjómann í potti við vægan hita, hrærið reglulega í.
Látið kólna örlítið áður enn þið hellið yfir ísinn.
Sjá myndband hér: https://youtu.be/rQvTiaDfHkU
Vörur í uppskrift
ATH. Vörurnar hér að neðan eru seldar í mis stórum einingum, stillið magn af eftir fjölda eða hakið vörur úr körfu sem ekki vantar. Magn á vörunum breytis ekki eftir fjölda eins og uppskriftin
-
Stærð pr. ein.í kassa
-
í kassa1Stærð pr. ein.2,5 l
-
í kassa6Stærð pr. ein.2 kg
-
í kassa6Stærð pr. ein.2 l
-
í kassa6Stærð pr. ein.473 ml
-
í kassa12Stærð pr. ein.400 g
-
í kassa30Stærð pr. ein.250 g
ATH. Vörurnar hér að ofan eru seldar í mis stórum einingum, stillið magn af eftir fjölda eða hakið vörur úr körfu sem ekki vantar. Magn á vörunum breytis ekki eftir fjölda eins og uppskriftin