Vöru bætt við körfu
Kjúklingur vafinn í prosciutto með blómkálsmauki
Kjúklingabringur vafðar í prosciutto-skinku, fylltar með hvítlauk og Manchego-osti og bornar fram á rjómalöguðu blómkálsmauki með bragðmikilli hvítlaukssósu.
Hve margir eru í mat?
Hráefni
- Kjúklingur:
- kjúklingabringur 10 stk
- OSCAR® Premium Fermented Garlic Paste eða Black Garlic 120 g
- Ostur í sneiðum 10 stk
- prosciutto skinkusneiðar 10 stk
- ólífuolía 3 msk
- Blómkálsmauk:
- kartöflur í teningum 2 stk
- blómkálshaus, saxaður gróft 1 stk
- OSCAR® Chicken Stock Concentrate (fljótandi kjúklingakraftur) 100 ml
- vatn 750 ml
- smjör 40 g
- parmesan ostur, fínrifinn 60 g
- Sósugrunnur:
- smjör 30 g
- stór laukur, skorinn í sneiðar 1 stk
- gulrót, skorin í teninga 1 stk
- sellerístilkur, skorinn í teninga 1 stk
- OSCAR® Premium Fermented Garlic Paste eða Black Garlic 50 g
- OSCAR® Chicken Stock Concentrate (fljótandi kjúklingakraftur) 50 ml
- vatn 1 líter
- sterkja til að jafna sósuna, eftir vild
- Brokkólíní:
- brokkólíní (smágert brokkólí) 10 stk
- ólífuolía 50 ml
- rauð chillíaldin, skorin í sneiðar 2 stk
- OSCAR® Premium Fermented Garlic Paste eða Black Garlic 60 g
- salvíublöð eftir smekk
Leiðbeiningar
Forhitaðu ofninn í 180 °C. Leggðu kjúklingabringurnar á bretti og skerðu lítinn vasa í neðri hlutann á hverri bringu. Smyrðu vel af OSCAR® Premium Fermented Garlic Paste inn í vasann og utan á hverja kjúklingabringu og leggðu sneið af Manchego-osti inn í vasann. Vefðu sneið af prosciutto utan um hverja bringu til að þekja fyllinguna.
Leggðu bringurnar á bökunarplötu með bökunarpappír og helltu ólífuolíu yfir. Bakaðu bringurnar í 20–25 mínútur. Penslaðu þær 2–3 sinnum, þar til þær eru gullinbrúnar og steiktar í gegn.
Blómkálsmauk: Láttu kartöflurnar og blómkálið sjóða á vægum hita í OSCAR® Chicken Stock Concentrate og vatni þar til mjúkt. Helltu vatninu frá, settu smjör og parmesan saman við, maukaðu allt vel og bragðbættu ef vill. Þrýstu maukinu gegnum gróft sigti eða stappaðu með kartöflustappara, þar til áferðin verður slétt og mjúk.
Sósugrunnur: Á meðan er sósan löguð með því að bræða smjörið við meðalhita í stórum potti og steikja lauk, gulrætur og sellerí í 5–8 mínútur, eða þar til grænmetið hefur karamellíserast. Bættu síðan OSCAR® Premium Fermented Garlic Paste og kjúklingasoðinu saman við. Láttu malla í 20 mínútur þar til það hefur minnkað. Láttu sósugrunninn taka sig vel. Jafnaðu sósuna eins og þurfa þykir.
Brokkólíní: Hitaðu ólífuolíuna og léttsteiktu chillíaldin og OSCAR® Premium Fermented Garlic Paste, settu brokkólíní saman við og bættu svolitlu vatni við. Láttu þetta sjóða undir loki þar til brokkólíníið er orðið skærgrænt á litinn og fullsoðið.
Framreiðsla: Skiptu blómkálsmaukinu á diskana. Skerðu kjúklingabringurnar í sneiðar og raðaðu nokkrum sneiðum á hvern disk. Dreyptu hvítlaukssósunni yfir og skreyttu með stökkum salvíublöðum, chillíaldini og brokkólíní.
Gott ráð:
Settu nokkrar msk. af OSCAR® Premium Fermented Garlic Paste út í blómkálsmaukið og berðu maukið fram með rauðu kjöti.
Þennan rétt er einnig hægt að elda með svínalundum.
Þú getur líka skipt brokkólíní út fyrir bok choy-kál, asískt grænmeti eða kúrbít.
Vörur í uppskrift
ATH. Vörurnar hér að neðan eru seldar í mis stórum einingum, stillið magn af eftir fjölda eða hakið vörur úr körfu sem ekki vantar. Magn á vörunum breytis ekki eftir fjölda eins og uppskriftin
-
Stærð pr. ein.í kassa
-
í kassa5Stærð pr. ein.2 kg
-
í kassa4Stærð pr. ein.2,5 kg
-
í kassa6Stærð pr. ein.580 g
-
í kassa8Stærð pr. ein.250 g
-
í kassa6Stærð pr. ein.1 kg
-
í kassa6Stærð pr. ein.2 l
-
í kassa1Stærð pr. ein.5 kg
-
í kassa1Stærð pr. ein.5 kg
-
í kassa4Stærð pr. ein.1 l
-
í kassa4Stærð pr. ein.1 kg
-
í kassa10Stærð pr. ein.500 g
-
í kassa6,5Stærð pr. ein.kg
-
í kassa25Stærð pr. ein.kg
-
í kassa1Stærð pr. ein.3 kg
-
í kassa10Stærð pr. ein.kg
-
í kassa14Stærð pr. ein.400 g
-
í kassa12Stærð pr. ein.200 g
-
í kassa10Stærð pr. ein.250 g
ATH. Vörurnar hér að ofan eru seldar í mis stórum einingum, stillið magn af eftir fjölda eða hakið vörur úr körfu sem ekki vantar. Magn á vörunum breytis ekki eftir fjölda eins og uppskriftin