Verslaðu fljótt og einfaldlega
AGWA er jurtalíkjör frá Bólivíu, framleiddur úr bólivískum kóka-laufum og blöndu af 36 öðrum sérvöldum jurtum og grösum. Þessi sérstæði drykkur inniheldur 40 grömm af kóka-laufum á hvern lítra en meðal annarra jurta sem notaðar eru við lögunina eru Amazon Guarana, argentískt Black Mountain te og kóreskt Ginseng. Bragðið er margslungið, sæt-beiskt og felur í sér fjölþætta sinfóníu af hinum margvíslegu jurtum.
Aðeins eru handvalin hágæða kóka-lauf sem ræktuð eru í Andes-fjöllunum í um 2000 metra hæð yfir sjávarmáli. Að því loknu eru þau flutt undir vopnaðri gæslu til Amsterdam þar sem framleiðslan fer fram. Þess má svo aftur á móti geta að kókaín-eindirnar eru fjarlægðar meðan á vinnslu laufanna og framleiðslu drykkjarins stendur og AGWA inniheldur ekkert kókaín, svo því sé haldið til haga.
AGWA er einstaklega heppilegur drykkur í kokteilagerð enda hentar hann í allra handa blöndur. Einnig er hann frískandi og góður einn og sér sem skot, og bestur er hann borinn fram vel kældur.
Aðeins aðilar með skráð vínveitingaleyfi geta pantað þessa vöru. Vinsamlegast hafið samband við verslun@innnes.is ef leiðrétta þarf skráningu.