Balfegó er spænskt fjölskyldufyrirtæki sem leggur metnað sinn í að bjóða heimsins besta bláuggatúnfisk. Fyrirtækið sameinar aldagamlar hefðir og nútíma tækni til að tryggja gæði sem eiga sér enga hliðstæðu.
Balfegó túnfiskurinn er rómaður fyrir einstaka áferð, ríkulegt bragð og fullkomið fituinnihald. Ólíkt öðrum, þá veiðir Balfegó fiskinn villtan í Miðjarðarhafi en heldur honum lifandi í stórum sjókvíum undan ströndum bæjarins L'Ametlla de Mar í Katalónska héraðinu Tarragona þar sem hann er alinn á hágæða fituríkum uppsjávarfiski þar til hann nær hámarks gæðum.
Til að tryggja hreinleika og bragðgæði notar Balfegó hina fornu japönsku Ikejime-aðferð við slátrun. Þessi tækni lágmarkar streitu fisksins, kemur í veg fyrir myndun mjólkursýru í vöðvum og tryggir að kjötið haldist ferskt, þétt og laust við óæskilegt eftirbragð.
Balfegó er brautryðjandi í rekjanleika. Hverjum bita fylgir QR-kóði sem viðskiptavinir geta skannað til að sjá nákvæmlega hvenær og hvar fiskurinn var veiddur, þyngd hans, fituinnihald og öll gæðavottorð. Þetta tryggir 100% öryggi og sjálfbærni.
Það er engin tilviljun að Balfegó er fyrsti valkostur fremstu matreiðslumanna heims. Túnfiskurinn er notaður á fjölmörgum Michelin veitingastöðum, þar sem krafist er ferskleika og gæða sem standast ströngustu kröfur.
Hjá Innnes er túnfiskurinn frá Balfego geymdur í djúpfrysti við -60°C sem tryggir bestu gæði.