Vöru bætt við körfu

Beck's

Beck's

Beck’s er einn vinsælasti þýski bjórinn enda bragðgóður og auðdrekkanlegur ljós lagerbjór, svalandi einn og sér en einnig prýðilegur matbjór.

Beck’s hefur frá upphafi verið bruggaður í hafnarborginni Bremen og saga Beck’s Brauerei og heimaborgarinnar hefur verið samtvinnuð í 145 ár. Þann 27.júní árið 1873 komu þar saman þrír framtakssamir menn – byggingameistarinn Lüder Rutenberg, bruggmeistarinn Heinrich Beck and kaupmaðurinn Thomas May – og lögðu grunninn að Kaiserbrauerei Beck’s & May, einni vinsælustu bjórgerð Þýskalands í dag. Svo náin eru tengslin milli brugghúss og borgar að vörumerki Beck’s og skjaldarmerki Bremen eru nánast eins og skarta hvítum lykli á rauðum grunni. Þar er á ferðinni lykill sjálfs Lykla-Péturs, þess hins sama og vaktar Gullna hliðið og hleypir aðeins verðugum inn í Himnaríki. Samlíkingin er hnyttin enda hefur Beck’s bjór alla tíð verið álitinn lykillinn að góðri stund og nú til dags eru um 3000 flöskur af Beck’s opnaðar á hverri mínútu í heiminum.

Heimsókn í brugghúsið er bæði fróðleg og skemmtileg og þar er boðið upp á áhugaverðar skoðunarferðir þar sem bæði er fjallað um sögu brugghússins og einnig farið ítarlega í bjórgerð og sögu brugglistarinnar.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er