Sæktu Innnes appið

Verslaðu fljótt og einfaldlega

Skoða

Caputo

Caputo

Saga Caputo nær aftur til ársins 1924, þegar bræðurnir Carmine og Pasquale Caputo stofnuðu sína fyrstu hveitimyllu á Ítalíu. Í dag er fyrirtækið enn fjölskyldurekið og er í dag rekið af þriðju kynslóð Caputo fjölskyldunnar. Fyrirtækið á rætur sínar í Napólí og hefur í gegnum áratugina þróað mikla sérþekkingu á vali, blöndun og mölun hveitis.

Caputo varð sérstaklega þekkt meðal napólískra pizzagerðarmanna, þar sem gæði hveitisins skipta gríðarlega miklu máli. Á níunda áratugnum hafði fyrirtækið skapað sér sterkt orðspor meðal bakara í Kampaníu og varð smám saman þekkt víðar um Ítalíu. Á tíunda áratugnum hófst svo alþjóðleg útrás fyrirtækisins og Caputo hveiti fór að rata í eldhús og pizzastaði víða um heim.

Það sem gerir Caputo sérstakt er fyrst og fremst áherslan á gæði og nákvæmni í gegnum allt framleiðsluferlið. Caputo velur mismunandi hveititegundir út frá eiginleikum þeirra og blandar þeim saman til að ná fram ákveðnum eiginleikum í hverri vörutegund. Þannig er hægt að viðhalda stöðugum gæðum og fyrirsjáanlegri hegðun deigsins, þrátt fyrir að eiginleikar uppskerunnar geti verið breytilegir frá ári til árs.

Hveitið er síðan malað með hægri og mildri mölunaraðferð. Samkvæmt Caputo fer hvert hveitikorn í gegnum meira en 25 mölunarskref. Markmiðið er að lágmarka hita og álag á kornið og varðveita þannig náttúrulega eiginleika sterkju og glútens. Þetta stuðlar að góðri vatnsbindingu, teygjanleika og stöðugleika deigsins í gegnum gerjun og bakstur.

Í dag býður Caputo upp á fjölbreytt úrval hveititegunda fyrir ólíkar þarfir – allt frá pizzu og brauðgerð yfir í pasta og sætabrauð. Vörurnar eru hannaðar með mismunandi baksturs- og vinnsluaðferðir í huga og hafa því orðið vinsælar meðal bæði atvinnumanna og áhugafólks um bakstur.

Caputo hefur á síðustu áratugum vaxið úr því að vera lítil „hveitibúð“ í Napólí yfir í alþjóðlegt fyrirtæki, en hefur á sama tíma haldið í þá hugmyndafræði sem allt hófst með: gott hveiti, vandað hráefni, hefð og virðing fyrir handverkinu.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Vörum bætt við körfu

Listi uppfærður

Ekki var hægt að bæta við körfu

Ekki var hægt að uppfæra lista

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki var hægt að bæta við körfu

Aðeins aðilar með skráð vínveitingaleyfi geta pantað þessa vöru.  Vinsamlegast hafið samband við verslun@innnes.is ef leiðrétta þarf skráningu.