Crin Roja er hluti af Roqueta-samsteypunni sem framleiðir framúrskarandi vín úr Monastrell-þrúgum (einnig þekktar undir franska heitinu Mourvèdre) sem vaxa á vínekru í hinu sólríka Albacete-héraði, nánar tiltekið í Fuente-Álamo. Markmiðið er einfalt: að framleiða vín með bragði sem er jafn leiftrandi og litur þess, þar sem einkenni ræktunarsvæðisins fá að njóta sín til fullnustu.
Bodegas Crin Roja býr yfir einstökum aðstæðum til vínræktunar. Hin heita sól ásamt 27 hektörum af kalk- og steinefnaríkum jarðvegi skilar af sér sérstökum þrúgum sem fara að lokinni uppskeru sem vín á franskar og amerískar eikartunnur til þroskunar. Útkoman er vín sem er í senn fágað og kraftmikið, margslungið og bragðmikið. Aðeins bestu berin eru valin til endanlegrar vínframleiðslu. Útkoman er frábært vín, afurð hins einstaka landsvæðis sem var vettvangur Don Kíkóta, og handverks sem hefur gengið mann fram af manni og gefur engan afslátt af kröfum um gæði.