Það er okkur hjá Innnes mikil ánægja að kynna samstarf okkar við þýska mjólkurvörufyrirtækið Frischli. Með þessu samstarfi færum við íslenskum veitingamarkaði úrvals mjólkurvörur þar sem sameinast áratuga hefðir, hágæða hráefni og nútíma framleiðslutækni.
Frischli var stofnað árið 1901 og er fjölskyldufyrirtæki sem í dag er rekið af fjórða ættlið. Í yfir heila öld hefur fyrirtækið vaxið úr því að vera lítið mjólkurbú í það að verða einn af tæknivæddustu mjólkurframleiðendum Evrópu. Þrátt fyrir stærð fyrirtækisins í dag þá hefur Frischli ávallt haldið í upphafleg gildin sín: gæði, áreiðanleika og gott samstarf við bændur.
Frischli er í samstarfi við yfir 700 kúabændur sem margir hverjir hafa framleitt mjólk fyrir fyrirtækið um margra kynslóða skeið. Þetta nána samstarf við bændur tryggir að aðeins ferskasta hráefnið sé notað og að rekjanleiki sé tryggður í hverri einustu pakkningu.
Frischli hefur náð þeim einstaka árangri að sameina hefðbundinn landbúnað og nýjustu framleiðslutækni. Fyrirtækið er leiðandi í svokallaðri UHT tækni, sem gerir það að verkum að vörurnar geymast vel við stofuhita án þess að fórna bragði eða áferð. Lengri geymslutími vörunnar dregur úr rýrnun og auðveldar lagerstýringu.
Samhliða tækniþróun er sjálfbærni í fyrirrúmi. Með áherslu á dýravelferð og umhverfisvæna orkunotkun í verksmiðjum sínum, sýnir Frischli að hægt er að reka öflugt fyrirtæki í sátt við náttúruna og lágmarka kolefnisspor frá fjósi til neytanda.
Vörur Frischli eru hannaðar með þarfir atvinnumanna í huga. Hvort sem um er að ræða veitingastaði, mötuneyti, hótel eða bakarí, þá er Frischli samnefnari fyrir öryggi í eldhúsinu.