Garden Gourmet® er alþjóðlegt vörumerki frá Nestlé Professional sem sérhæfir sig í hágæða jurtamatarlausnum fyrir veitingageirann. Vörurnar eru þróaðar með fagfólk í huga – með áherslu á bragð, áferð og notagildi í fageldhúsum þar sem skilvirkni og stöðug gæði skipta máli.
Garden Gourmet® býður upp á fjölbreytt úrval plant-based vara sem henta jafnt sem aðalréttir eða hluti af stærra réttasafni. Markmiðið er að gera það einfalt fyrir veitingastaði, mötuneyti og hótel að bjóða upp á spennandi jurtavalkosti án þess að fórna bragði eða upplifun.
Af hverju Garden Gourmet®?
Framúrskarandi bragð og áferð sem stenst samanburð við hefðbundnar prótínlausnir
Auðvelt í meðhöndlun – hannað fyrir fageldhús og stöðuga framleiðslu
Fjölbreytt notkun – í borgara, salöt, pastarétti, taco, wraps og fleira
Styður við fjölbreytt fæðuval og aukið framboð á jurtaréttum
Fyrir nútíma matseðla
Eftirspurn eftir jurtavalkostum hefur aukist verulega á síðustu árum. Með Garden Gourmet® geta viðskiptavinir Innnes brugðist hratt við breyttum neysluvenjum og boðið upp á rétt sem höfða bæði til grænmetisæta, flexitarian og þeirra sem vilja einfaldlega fjölbreytni á matseðilinn.
Hvort sem um er að ræða safaríka plant-based borgara, „mince“ fyrir pastarétti eða stökkar bitavörur í street food, þá er Garden Gourmet® traust lausn fyrir fagfólk sem vill sameina gæði, nýsköpun og áreiðanleika.