Vöru bætt við körfu

Illegal Mezcal

Illegal Mezcal

Það er akkúrat ekkert ólöglegt við Ilegal Mezcal, en samt sem áður er ekki laust við eilítið stjórnlausa stemningu í þessum magnaða drykk. Nafnið mezcal er úr hinu forna máli Azteca og dregið af hugtakinu mexcalli metl ixcalli sem þýðir einfaldlega ofeldaður agave, en agave er uppistaðan í mezcal, rétt eins og í tequila. Hjá Ilegal Mezcal er þetta einfalt mál; það eina sem drykkurinn innheldur er Espadín agave, sólin í Oaxaca (í Suður-Mexíkó) og tími. Bara þetta þrennt.

Það er við hæfi að kalla Ilegal Mezcal handverksáfengi því hver einasta agave-planta sem notuð er í framleiðsluna er höggvin með handafli, og þegar framleiðslan er tilbúin, að tvöfaldri eimingu lokinni, er vökvinni settur á flösku og henni lokað með handafli. Svo er miðinn merktur – einmitt, með handafli.

Fyrst þarf að glóða agave-plönturnar, sem tekur 5-7 daga. Náttúruleg gerjun á sér svo stað í stórum furutunnum, í 7-10 daga. Þegar kemur að því að setja drykkinn á flöskur fer hluti beint í töppun og sá drykkur kallast Joven. Annar hluti er látinn þroskast í 4 mánuði á amerískum eikartunnum og þegar hann er tilbúinn heitir það Reposado. Loks er þriðji hlutinn þroskaður í 13 mánuði á amerískri og franskri eik, einnig notuðum bourbon-tunnum. Þessi útfærsla kallast Añejo og er af flestum talinn sá besti.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er