Mosi Gin er ekkert venjulegt gin. Það er hugsað, mótað og veðrað af íslenskri náttúru. Afar vandað gin er sett á tunnur sem áður innihéldu drykki eins og t.d. viskí, portvín og appelsínulíkjör. Tunnunum er svo komið fyrir í íslenskri náttúru þar sem þær bera sig fyrir náttúruöflunum. Vindur, salt, hiti, kuldi og þrýstingur eiga öll sinn þátt í bragðmynduninni. Hver tunna hefur sinn karakter og sameinar áhrif tunnunnar við umhverfið sem hún dvelur í.
Fyrstu tvær veðrunarstaðsetningarnar voru algjörar andstæður „eldur og ís“:
Ofan á Eldfelli í Vestmannaeyjum, þar sem vindur, sjávarilmur og hitasveiflur vinna ginið með miklum áhrifum. Þessi útgáfa fær dýpri, kraftmeiri og óvænta tóna í bland við salt, reyktan blæ eða ávaxtakeim eftir því hvaða tunna var notuð.
Inni í Langjökli, þar sem kuldi, stöðugur þrýstingur og þögn veita gininu tækifæri til að þroskast hægt og nákvæmlega, sem gefur hreinni og oft dýpri karakter.
Þetta ferli tryggir að hver einasta lota af Mosi Gin er einstök. Þar sem veðrið og umhverfið breytast stöðugt eru engar tvær týpur af Mosa Gin nákvæmlega eins. Ginið verður því að „árgangsvöru“ með einstökum karakter sem ómögulegt er að endurgera.
Útkoman er gin sem sameinar handverk við kraft íslenskrar náttúru — það er mótað af jurtum, kryddum, tunnunni og landinu sjálfu, og að lokum veðrað til fullkomnunar.