Vöru bætt við körfu

Muga

Muga

Vínrækt á sér um 200 ára samfellda sögu á svæðinu í nágrenni bæjarins Haro við Rioja, en saga framleiðandans Muga hefst árið 1932 þegar Isaac Muga Martínez og eiginkona hans hefja þar ræktun þrúgna og rekstur víngerðar. Allar götur síðan hefur sú hefð haldið þar á bæ, rétt eins og annars staðar í Rioja, að notast eingöngu við staðbundnar þrúgur úr héraðinu til víngerðarinnar. Þar er heldur ekki í kot vísað hvað þrúgurnar varðar. Þar ber fyrst að nefna Tempranillo, nema hvað, enda einkennisþrúga rauðra Rioja-vína sem eru jafnan kraftmikil, eikuð og dimmrauð – geggjuð þrúga fyrir kryddað kjöt og grillsteikur. Hinar rauðu þrúgurnar eru Garnacha, Mazuelo og Graciano. Af hvítum þrúgum er Viura langalgengust, en Malvasía er hin hvíta þrúgan í Rioja.

Þetta eru allt saman þættir sem víngerðir í Rioja-héraði eiga sameiginlega, en það er svo aftur á móti sitthvað sem aðgreinir Bodegas Muga frá sveitungum sínum í víngerðarstétt á Spáni. Þar ber helst að nefna að aðstæður vínsins við gerjunina. Gerjunin er vitaskuld sú sama og annars staðar, hið náttúrulega ferli þar sem sykurinn í vínberjunum umbreytist hægt og rólega í etanól, öðru nafni vínanda. Munurinn felst í ílátunum: á meðan önnur vínhús nota í auknum mæli stáltanka til að láta berin gerjast í, þá hafa víngerðarmeistararnir hjá Bodegas Muga bitið það í sig að ekkert jafnist á við eikartunnur til að hýsa þrúgurnar meðan á gerjuninni stendur. Vinsældir vínsins frá Muga er líka til marks um að þeir hafi eitthvað fyrir sér í þessu. Umræddar tunnur eru heldur engin smásmíð heldur eru þær á bilinu 3000 til 15000 lítrar að stærð, níutíu talsins alls, og standa í fjórum gríðarmiklum gerjunarsölum sem víngerðin hefur yfir að ráða.

Íslendingar hafa löngum haft dálæti á Rioja-vínum og þau eru fyrirtaks matvín. Rauðvínin henta sérlega vel með hvers konar kjötréttum enda fátt sem eikað og flauelsmjúkt Tempranillo-vín ræður ekki við af þess háttar veisluréttum. Hvítvínið frá Muga er einnig prýðilegt matvín og passar fullkomlega með hvers kyns grænmeti og fiskréttum, tapas og grjónaréttum. Rósavínið eru unaðslegt með ceviche-réttum, fersku salati og fiskitartar. Þá er ónefnt freyðivínið frá Muga, en Conde de Haro, eins og það nefnist, er cava af taginu Brut Vintage og þar af leiðandi tilvalið þegar skjóta þarf tappa og skála í góðra vina hópi.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er