Vöru bætt við körfu

Organic Human

Organic Human

Organic Human orkuskotin er auðveld og fljótleg leið til að auka orkuna í amstri dagsins. Þau eru 100% lífræn og í þeim er ekki að finna nein aukefni, rotvarnarefni, litarefni eða viðbættan sykur. Auk þess eru þau í dökkum glerflöskum sem draga úr áhrifum útfjólublárra geisla og varðveitir alla þá góðu eiginleika sem innihaldið hefur að bera. Organic Human lífrænu orkuskotin eru góð viðbót við heilbrigðan lífsstíl og fjölbreytt mataræði en mælt er með 50ml skoti daglega.

Organic Human lífrænu orkuskotin fást m.a. í eftirfarandi verslunum; Extra24, Fjarðarkaup, Hagkaup, Kjörbúðin, Krambúðin, Nettó & Melabúðin.

Engifer

Lífrænt engiferskot frá Organic Human. Engiferrót inniheldur mjög öflug andoxunarefni sem stuðla að verndun frumna ásamt því að virka sefandi á meltingarveginn og vera bólgueyðandi. Þessi blanda af engifer, rauðrófum, granateplum, sítrónum og chili er hressandi og passlega bragðsterk. Fæst í bæði 100ml og 500ml flöskum.

Túrmerik

Lífrænt túrmerikskot frá Organic Human. Túrmerik inniheldur curcumin sem er afar öflugt andoxunarefni sem vinnur á bólgum í líkamanum. Það hlutleysir sindurefni og örvar líkamann til að framleiða andoxandi ensím. Þessi blanda af túrmerik, engifer, hafþyrniberjum, appelsínum og eplum er einstaklega öflug blanda með fersku appelsínubragði. Fæst í bæði 100ml og 500ml flöskum.

Ginseng

Lífrænt ginsengskot frá Organic Human. Ginseng inniheldur Panax Ginseng rótina sem fannst fyrir meira en 5.000 árum í Manchuria fjallgarðinum og hefur verið notað í Asíu sem náttúruleg lækning í meira en 2000 ár. Ginseng hefur löngum verið talið stuðla að bættri vellíðan en það er m.a. talið öflugt andoxunarefni sem getur dregið úr bólgu ásamt því að efla ónæmiskerfið, gagnast gegn þreytu með bættri orku og stuðla að lægri blóðsykur. Þessi blanda inniheldur ginseng, aroniaber, sólber, epli, kanil og chili. Fæst í 100ml flöskum.

 

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er