OTA Solgryn hefur verið hluti af íslenskum morgunverðarborðum í áratugi og er eitt þekktasta hafravörumerki landsins. Vörumerkið hefur um langt skeið staðið fyrir einfaldleika, gæði og góðan dag frá fyrsta bita.
Solgryn býður upp á vandaðar hafravörur sem henta vel í hafragraut, bakstur og aðra daglega matargerð. Þetta er traust og kunnuglegt vörumerki sem margir Íslendingar hafa alist upp með og treysta enn í dag.
Auk klassískra hafravara frá Solgryn bjóðum við einnig upp á múslí frá Ota og vörur frá Crispy Food – vandaðar morgunverðarvörur sem sameina gæði, bragð og þægindi fyrir daginn.