Skotar eru þekktir fyrir dugnað og þrautseigju, og þó aðstæður komi Skota á kné þá herðir hann upp hugann og stendur aftur upp. Þannig er einmitt saga skosku viskígerðarinnar Tamnavulin: hún var sett á laggirnar árið 1966 í smáþorpinu Tomnavoulin en lokaði árið 1995. Ekki var við það unað til lengri tíma heldur tók mannskapurinn sig saman, endursmíðaði húsakostinn að stórum hluta og hóf aftur framleiðslu á því herrans ári 2007. Síðan hefur Tamnavulin ekki slegið feilpúst en framleiðir ekta Hálanda maltviskí enda ættað frá svæðinu kringum ána Spey. Viskíið er eins og þau gerast þar best, milt, silkimjúkt, og bragðgott.
Nafnið „tamnavulin“ er úr forn-gelísku, eins og fleiri heiti skoskra viskía, og merkir myllan á hæðinni. Þorpið sjálft með samnefnda viskígerðina og alla sína 40 íbúa (við sögðum að þetta væri smáþorp!) stendur við rætur fjallsins Cairngorm djúpt í hjarta Speyside-svæðisins, nafntogaðasta viskígerðarsvæðis veraldar. Á þessum stað er veðrið óvenju milt og gott og skapar frábærar aðstæður til að rækta bygg til framleiðslunnar og líka til geymslu á viskíi meðan það þroskast.