Vöru bætt við körfu

Teacher's

Stundum þarf ekki nema framtakssaman ungan mann til að skapa stórveldi og þannig er sagan á bakvið Teacher’s viskí. Sagan hefst árið 1823 þegar 19 ára drengur að nafni William Teacher velti því fyrir sér hvað hann ætti að gera. Þegar áfengisbanninu í Skotlandi var aflétt og fólk mátti eima viskí til framleiðslu á ný, gegn gjaldi, sá Teacher hinn ungi að hér var möguleiki á bissness. Árið 1830 hafði hann komið fótunum undir framleiðsluna og fékk að selja í matvöruverslun einni í Anderson-hverfi Glasgow-borgar.

Hið fantavel blandaða viskí hans, með höfugum og þéttum móreykjarkeim, varð geysivinsælt og tveimur árum seinna gat William Teacher opnað sína eigin „dram shop“ eða viskíbar við Piccadilly stræti þar í borg. Svo miklar urðu vinsældir hins bragðmikla viskís sem Teacher bauð á barnum að hann opnaði annan, og svo annan, og áður en á löngu leið voru 20 viskíbarir með nafninu Teacher’s opnir um alla Glasgow.

Enn þann dag í dag einkennir hinn mikli móreykskeimur viskíið frá Teacher’s og þeir sem kunna að meta fágað en um leið kraftmikið viskí hafa alltaf dálæti á Teacher’s.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er