Vöru bætt við körfu

The Botanist

The Botanist

Það hefur lengi verið þekkt meðal viskíunnenda að handverks-viskígerðin Bruichladdich á eyjunni Islay kann þá list að búa til fantagott viskí. Fyrir þá sem kunna að meta hágæða gin eru hér góðar fréttir – þar á bæ er líka búið til gin með sömu faglegu handverks-nálguninni og þeir búa til viskí, og það heitir The Botanist, eða Grasafræðingurinn.

Rétt eins og viskímeistarar Bruichladdich leggja áherslu á staðbundna eiginleika hráefnanna frá Islay við gerð hinna einstöku tegunda viskís sem þeir framleiða, þá liggur grundvöllur gingerðarinnar hjá systurfyrirtækinu sem býr til The Botanist að sama skapi í jurtum og lyngi sem vaxa við einstök skilyrði á Islay; hér tryggir síhvikur Atlantshafsgusturinn tandurhreint loft um leið og nálægðin við hafið hefur sitt að segja. Auk hefðbundinna hráefna, sem eru 9 talsins í venjulegu gini, er að finna hvorki fleiri né færri en 22 tegundir villtra jurta sem eru handtíndar á eyjunni af sérfræðingum hússins. Semsagt alls 31 tegund úr jurtaríkinu sem saman mynda göldrótta bragðsinfóníu. Jurtirnar eru það sem gefa gininu bragðið og þær eru það eina sem gefa því bragðið. Engin önnur bragðefni koma nálægt þessu gini.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að algengasta leiðin til að njóta góðs gins er að blanda því saman við gott tónik og því hugsa sér eflaust flestir gott til glóðarinnar að búa til góðan G&T þegar þeir komast yfir flösku af þessu úrvalsgini. Sé hins vegar skimað yfir hinar mörgu síður alnetsins þar sem fjallað er um gin, umsagnir gefnar og fleira í þeim dúr, sést ekki bara að The Botanist fær heilt yfir framúrskarandi góða dóma heldur líka að merkilega margir einstaklingar segja ginið svo gott að þeir njóti þess helst beint úr frystinum, hellt yfir fullt af ís og annað þurfi ekki. Okkur grunar nú samt að The Botanist gefi af sér geggjaðan G&T og nú þegar þetta magnaða handverksgin er komið í Vínbúðirnar er lag að prófa og smakka.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Ekki næg lagerstaða til fyrir þessa vöru

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er