Ástríða Coppola fjölskyldunnar fyrir jarðveginum, ræktun og vörunum þeirra hefur haldist í fjórar kynslóðir. Coppola fjölskyldan byrjaði að vinna með jarðveg sem gaf af sér bragðgóðar og náttúrlegar vörur. Þá hóf Coppola fjölskyldan einnig að selja vörur sínar og festi sig fljótt í sessi. Vörumerkið Valgri varð svo til árið 1992 en þeir tómatar eru ræktaðir í hlíðum Vesúsvíusar. Vesuvius Piennolo Cherry Tomato DOP er sérstakt afbrigði af tómötum sem vex eingöngu í þjóðgarði Vesúvíus. Hann er sporöskjulaga og mjór í annan endann. Þessir tómatar hafa þykkt hýði sem varðveitir og eykur geymsluþol. Einkenna þessa tómatar má rekja til eldfjalla-jarðvegarins.