Vöru bætt við körfu

Cesar Nieto

Cesar Nieto

César Nieto er spænskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur ræktað Íberíusvín í yfir 100 ár og framleitt kjötvörur í hæsta gæðaflokki. Fyrirtækið var stofnað árið 1895 og var brautryðjandi í svínarækt í Guijuleo héraði og lagði grunninn að þeim gæðastaðli sem í dag er kenndur við héraðið og fá einungis albestu vörur hina virðulegu D.O.P. Guijuelo vottun sem er elsta upprunavottun fyrir Íberíukjöt á Spáni. Í dag er fyrirtækinu stýrt af fimmtu kynslóð Nieto fjölskyldunnar sem enn vinnur eftir hinum aldagömlu gildum fyrirtækisins sem tryggir fullkomin gæði.

César Nieto eru staðsettir í hjarta Íberíu um það bil 1000 metrum yfir sjávarmáli á stað þar sem náttúran og loftslag skapa hinar fullkomnu aðstæður til framleiðslunnar. Í hinum víðáttumiklu eikarskógum sunnan Salamanca við rætur Sierra de Gredos ala César Nieto Íberísku svínin sín, þar sem þau ganga um frjáls og nærast á akörnum (Bellota/Acorn) sem gefur kjötinu sína einstöku fitusprengingu og hið hnetukennda og fágaða bragð.

Kjöt frá César Nieto er boðið á mörgum af bestu veitingastöðum heims og hafa vörur César Nieto unnið til fjölmargra verðlauna. Má þar m.a. nefna að árið 2024 hlaut Jamón de Bellota 100% hráskinkan verðlaun Golden Fork sem besta matvara sem framleidd er á Spáni.

Leitarniðurstöður

Vöru bætt við körfu

Vörum bætt við körfu

Listi uppfærður

Ekki var hægt að bæta við körfu

Ekki var hægt að uppfæra lista

Ekki næg lagerstaða fyrir vöru:

Staða á lager er

Ekki var hægt að bæta við körfu

Aðeins aðilar með skráð vínveitingaleyfi geta pantað þessa vöru.  Vinsamlegast hafið samband við verslun@innnes.is ef leiðrétta þarf skráningu.