Vöru bætt við körfu
Innnes hlýtur Þekkingarviðurkenningu FVH 2026
Innnes hlýtur Þekkingarviðurkenningu Félags viðskipta- og hagfræðinga árið 2026 fyrir framúrskarandi árangur, metnaðarfulla uppbyggingu og skýra framtíðarsýn. Að mati dómnefndar hefur fyrirtækið sýnt eftirtektarverða framkvæmdagetu við að byggja upp öflugri og fjölbreyttari rekstur sem skapar aukið virði fyrir bæði viðskiptavini og samfélagið í heild.
Dómnefndin lagði jafnframt sérstaka áherslu á hvernig Innnes hefur nýtt þekkingu, innviði og mannauð með markvissum hætti til að efla starfsemina og styrkja rekstrargrunn sinn. Þá hefur fyrirtækið aukið samkeppnishæfni sína með öflugri uppbyggingu á dreifingu og meðhöndlun ferskvara sem hefur bæði rekstrarlegan og samfélagslegan ávinning í för með sér.
Lesa frétt