Ævintýrið hófst á vesturströnd Bandaríkjanna
07. janúar 2022
Tuttugasta og fimmta mars nk. verða 35 ár liðin síðan þrír félagar í Hafnarfirðinum stofnuðu heildsöluna Innnes. Þeir ferðuðust vestur um haf, fengu umboð fyrir Hunt’s tómatvörur og boltinn fór að rúlla. Nú starfa um 200 manns hjá fyrirtækinu og er veltan um 10,5 milljarðar í ár. ViðskiptaMogginn settist niður með Magnúsi Óla Ólafssyni, forstjóra og einum stofnenda Innness, og ræddi við hann um tómatsósustríðið á 9. áratugnum, yfirtöku á heildsölum, innflutningshömlur á matvælum og stöðuga aðlögun að þörfum neytenda.